mánudagur, 22. september 2008

Þjóðarstolt....

Í dag er mánudagur...rosalega mikill mánudagur finnst mér...ég snúsaði alveg í fjöritíu mín í morgun...hugsa að það tengist því eitthvað að nágranninn á efri kveikti ekki á músíkinni í botn klukkan 8 eins og hann gerði alla síðustu viku á hverjum morgni...jamm klukkan átta...ég hugsaði oft...djöfulls overbo...getur hann ekki beðið til allavega tíu...hugsaði með mér hvort ég ætti að kvarta...gat það ekki...og ástæðan var sú að það sem hann spilaði gerði mig svo glaða...Björk í blasti á hverjum morgni klukkan átta kemur manni nebblega alveg í smá gott skap þar sem þjóðarstoltið rifnar næstum...ætti kannski að fara upp og biðja hann að endurtaka leikinn á morgun...

Annars er Inga Rut farin heim því miður...var æði að hafa hana...gerðum fullt skemmtó...ekkert leiðinlegt...Ingar Rún átti afmæli...fórum þangað í kökur nammi namm...TIl hamingju mað afmó einu sinni enn...fórum í rosa stelpupartý...bodies sýninguna...fannst hún mega...og bara að krúttast eins og okkur snúðunum er lagið...

Nú tekur við rólegheita vika sem endar með afmæli Heiðunnar minnar...jibbí...en svo held ég það verði tekin smá pása...bara svona því það er kalt í köben og meiri stemming á mínu heimili fyrir huggulegt heit heimafyrir...gnúsinn kom með pakka handa mér í síðustu viku...jamm fékk loksins púsl sem ég ætla að fara að byrja á núna...þegar ég hef nebblega ekkert betra að gera:D

annars var ég að þýða CV-ið mitt á dönsku...sjáum svo til hvað gerist....en ástarkveðjur yfir hafið...

3 ummæli:

ingarun sagði...

jeij! og hvar er mynd með blogginu? saknaðarkveðjur handan Enghave:)

Nafnlaus sagði...

En Gaman að fá fréttir af Bibbunni :) til lukku með nýja bloggið. Kys.

fanneyf sagði...

Til lukku með nýja bloggið. Gaman að lesa fréttir af þér elskan.
Kossar og knús og söknuður handan Atlandshafsins.