miðvikudagur, 21. nóvember 2012

ég veit ég veit...

...Hong Kong blogg tvö lætur aðeins bíða eftir sér...
ástæðan er sú að síðustu daga og aðalega í dag er ég með hjartað í hálsinum...og á erfitt með að draga andann...allt út af Ba-stressi...mér finnst ég vera að drukkna...mig vantar fleiri klukkutíma í sólarhinginn...og bara almennt meira overskud! 
Það eina sem kemst að hjá mér í mínum yfirfulla heila...ekki það að það séu endilega gáfur ég myndi frekar kalla þetta graut...er þessi blessaða ritgerð...
ég vakna með auka hjartslátt...ég sofna með auka hjartslátt...svo ekki sé minnst á samviskubitid ef ég elda matinn, fer í leikfimi, tala í símann, leyfi mér að borða án þess að gera það yfir skóla bókunum, að skrifa þetta núna og svona mætti lengi telja...ég vona að þetta vari við í stuttan tíma og beisiklí fljúgi út í veður og vind sem fyrst! 
Stressið er óvelkominn gestur!

fimmtudagur, 15. nóvember 2012

Hong Kong nr. 1


Ég hef átt mér draum í nokkuð mörg ár...þessi draumur var í flokki þeirra drauma sem maður á en heldur að verði aldrei að raunveruleika....Draumurinn var að komast til Hong Kong...afhverju ég hafði þann draum get ég ekki sagt neitt um...ég vaknaði bara einn daginn með þann drauminn...Þetta nefni ég við Magnus fyrir einhverjum árum síðan og hefur hann minnst á þetta af og til...ég var ekkert mikið að kippa mér upp við það þar sem þessi draumur var jú einn af þeim sem verða ekki að veruleika...það hélt ég alveg þangað til Magnusinn hringdi í mig í sumar og tilkynnti mér: You got mail! já þetta var alveg svoleiðis...því meili fylgdi flugmiði fyrir MIG til Hong Kong...já ok...bíddu...WHAT!
12 oktober var lagt í hann...med spennu meira segja mikla spennu í mallanum...Vid flugum seinnipart kvölds og millilentum í Helsinki (Þá get ég loksins sagt að ég hafi komið til Finnlands og nei ég náði ekki að fara í gufu) og svo beina leið (bara tíu tímar) til Hong Kong...
Við vorum að lenda um 14 á Kínatíma...25 gráður...sem sagt sviti á efrivör á bibbumælikvarða...næst var að koma sér á hótelið...samgöngur í Hong Kong eru ekkert slor...við tókum bus frá flugvellinum niður í bæ....við *hóst* ég, hafði ekki alveg gert mér grein fyrir því að götur í Hong Kong eiga eftirnafn eins og ég á Magnúsdóttir eiga göturnar í HK td. Central, east eða west...einhverskonar byrjendamistök kýs ég að kalla þetta...en allavega þetta varð til þess að við vöfruðum um í klukkutíma með allan farangurinn á bandvitlausri götu...og það má bæta því við að það eru ekki mörg undirgöng í Hong Kong (allavega sá ég tvö) en það er rosa mikið af “yfirgöngum” sem hjálpa manni að komast yfir stórar götur...það var ekstra hressandi með farangurinn...gott að Gnúsinn minn er ofurmenni! 

Hérna sést í smá hluta af "yfirgöngum"
      

 
...en að sjálfsögðu endaði Pollýanna og ofurmennið á því að finna hótelið með smá hjálp frá mjög svo góðhjörtuðum Hongkongingi...spurðum hann til vegar og hann labbaði með okkur í 15 mín og fylgdi okkur upp að dyrum...svona eru hongkongarnir gestrisnir! Þar með var fyrsta tilgáta mín um kínverja jörðuð!
 

Hótelið var dásemd...snögg sturta...og svo var ekki seinna vænna en að koma sér út af því aftur og skoða umkverfið, allt það sem við náðum ekki að njóta í hótelleitinni...
Ég get alveg viðurkennt það að ég varð ástfanginn á núll einni...og það svona alveg...VÁ....hvað er að frétta!


Þetta er garður sem var hliðina á hótelinu okkar


 Við röltum upp Hollywood road sem var nokkrum götum frá því þar sem við bjuggum. Við sem sagt bjuggum í hverfi sem nefnist Soho og er hluti af Central hverfinu á  Hong Kong eyjunni! Hong Kong er sem sagt bæði Hong Kong Island (þar sem við bjuggum) og svo hluti af meignlandinu. Við fengum okkur snæðing og svo fengum við aðeins nasaþefinn af næturlífinu í HK...



Þarna erum við komin á víetnamskan veitingastað




Það var mikið af svona almenningssvæðum þar sem fólk hafði það huggulegt og við settumst á bar sem lá við þetta hérna að ofan og fengum okkur bjórsopa...þó var ekki mikið af kröftum eftir í ofrumenninu og pollýönnu svo við fórum frekar snemma í bólið þetta kvöldið til að geta tekist á við ævintýri morgundagsins. 
Kvöld útsýnið

Morgundagurinn var sem sagt sunnudagur...palemo og kaffi í morgunmat (eins og alla hina dagana)

...og svo var stefnan tekin á útsýnis rútuna til að við gætum fengið smá yfirsýn yfir hin ýmsu hverfi og hvað það væri sem okkur langaði að sjá...Við röltum því niður á höfn og meðfram vatninu þangað til við komum að rútunum...á leiðinni urðu á vegi okkar, fiskimenn, fullt fullt af filipínskum konum í hópum sem sátu út um allt...undir brúm...ofan á brúm...bara allsstadar...við erum ekki enn búin að komast af því hvað þeirra hlutverk var en eitt gisk hljómar...atvinnuleit...
Við tókum svona hop on og off bus...og ákváðum að hoppa úr í einu hverfi sem okkur leyst rosa vel á...og heitir Casway bay...þar kíktum við í búðir og reyndum að gapa ekki of mikið (það gæti þótt dónalegt í kína) yfir öllum dýru búðunum...Gucci, Prada, Armani...name it....þarna eyddum við sem sagt restinni af eftirmiðdeginum og fórum svo aftur í heim til Soho. Við fengum okkur kvöldhressingu og röltum um hverfið okkar...meðal annars eru rúllutröppur utandyra sem bera mann upp á hæð...Soho hverfið er mikið hallandi og því dásemd að hafa svona...við enduðum síðan á sama stað og kvöldið áður í einn bjór fyrir svefninn...á dagsskránni daginn eftir var nebblega strandferð! bíðið spennt!
p.s. mér finnst hálf vandræðalegt að vera að reyna að koma þessu niður á blað...af því að svo mikið af þessu öllu saman er upplifunin og stemningin og bara að vera peð milli allra þessara yfirþyrmandi bygginga og vera að upplifa menningu sem maður er ekki vanur....það er svo erfitt að miðla því áfram...þannig að það skiljist á þann hátt að maður vilji að það skiljist...skiljiði? 
en ég skal gera heiðarlega tilraun til að koma þessu frá mér svo þetta hljómi ekki sem leiðinlegt ferðalag því það var það svo alls ekki...þetta var besta ferðalag sem ég hef farið í...hingað til...og er það kannski þess vegna sem mér finnst erfitt að koma því frá mér...en ég ælta ekki að drepa ykkur með allt í einu innleggi og hætti þess vegna hér...þangað til á morgun! To be continued!


 

fimmtudagur, 8. nóvember 2012

Hverdsagsleikinn í hávegum hafður!

Ég er búin að fá þennan heim...loksins... 



Hann er kominn á fullt í vinnu eins og áður var...sem sagt til 23 á hverju kvöldi og ég "dunda" mér með bros á vör (lesist hatursaugu) við ba-ritgerðina á meðan...

...í kvöld fer ég að vinna...á barnasímanum...nema hvað...ég var beðin um að vera yfir annari sem er að fara á sína fjórðu vakt!... ég á sem sagt að vera með eina i oplæring eins og maður segir það á fallegri dönsku...ég reyndi að koma mér undan því með því að segja að mér fannst ég ekki alveg tilbúin til þess...og það er true story...því var sem sagt ekki tekið sem giltu svari svo þá er ekkert annað að gera en að demba sér út í það...

...svona ykkur að segja...
...þá kætir vinnan mín mig oft, oftar, oftast...en gerir mig líka stundum leiða...
...stundum fer ég að hlæja af því börn og unglingar geta verið sniðugir, skemmtilegir og með ímyndunarflug sem ég stundum gapi yfir!  En svo eru líka börnin og unglingarnir sem eiga mjög erfitt...og það eru því miður svo margir sem eiga engann og þá meina ég engann sem þau geta talað við um hvað þeim er illt í hjartanu! mér finnst það alltaf jafn sorglegt og hugsa á sama tíma...VÁHÁ hvað ég er heppin...ég á yndislega fjölskyldu (meira segja stærri en margir) yndislega vini og síðast en ekki síst yndislegan kærasta...
...það gefur mér stundum sting í hjartað að hlusta á það hvað sum börn og unglingar þurfa að lifa með/við en á sama tíma fyllist ég stolti og svo mikilli gleði að hjartað næstum springur og ég brosi hringinn af því að bara það að hlusta á þau og gefa þeim leyfi til að vera þau og enginn annar gefur þeim oft von...von um betra líf...stundum þurftu þau bara að segja þetta við einhvern og að ég fái tækifæri á að vera þessi einhver er ég svo þakklát fyrir! 
Og svo kvarta ég yfir BA skrifum sem ég valdi mér sjálf...ég er hér með hætt því:)

Þá fékk ég smá létt af hjartanu mínu!

knús yfir hafið elskurnar myndirnar og Hong Kong ferðasaga er totally næst á dagskrá 

miðvikudagur, 31. október 2012

allt á fullu

Bibban er busy þessa dagana...mega busy í Ba ritgerðar smíðum.... 
Það styttist óðum í 19 desember og gefur það mér smá sting í magann og ört bankandi hjarta...
en þetta hefst allt á endanum og ég veit bara að ég á eftir að hafa mikið að gera og það er líka ágætt þá verður biðin eftir jólunum þar af leiðandi styttri. 
...Við komum heim 20 december og förum aftur 3 janúar...
Það er magnað hvað maður vinnur alltaf best undir pressu...sama hvað maður setur sér af markmiðum maður endar alltaf á því að koma sér í smá stress...you gotta lov it!

Hér er komið haustveður og þá er alltaf gott að elda súpur...ég prófaði þessa um daginn og hún var dásaemd ein...auðdveld og meinholl...
*Verði ykkur að góðu*



miðvikudagur, 24. október 2012

Draumur í dós!

Jæja þá er Bibban komin heim frá Kínalandinu, reynslunni ríkari má segja. 
Hong Kong ER magnaðasta borg sem ég hef komið til á annars stuttri æfi minni!
Ég ætla pottþétt þangað aftur...sem allra allra fyrst! 
Já, það er sko óhætt að segja að ég (& Magnus) erum blown away!!!



Vid lentum í allskonar ævintýrum og tókum yfir 500 myndir. Það kemur ferðasaga og myndir inn við fyrsta tækifæri. Svo bíðið spennt:)

后来

fimmtudagur, 11. október 2012

Á morgun segir sá lati!

En ég segi á morgun fer ég til Hong Kong!
Ég get eiginlega ekki beðið. 
Það verður yndislegt:
- að upplifa eitthvað alveg nýtt
- að hugsa ekki um Ba ritgerðina (vonandi)
- að þurfa að nota sólgleraugu 
- að drekka bjór & horfa á fólkið
- að fara á ströndina
- að vera í sandölum & sumarkjól
- og mest best að eiga kærastann alveg út af fyrir sig í 8 daga

Ég á eftir að koma endurnærð og húðlituð til baka þangað til hafið það gott & fariði vel með ykkur!

Bibban

mánudagur, 1. október 2012

bara 11 dagar!

Photo: Hong Kong nálgast:) http://instagr.am/p/QPaIsynUyt/
kìna visum sent af stad!

fimmtudagur, 27. september 2012

Sumarið er búið!

Tíminn líður einfaldlega of hratt...jamm sumarið er búið og haustið komið.

Við systkynin út í Æðey
Sumarið mitt var gott...eftir prófatörn satans (sem mér fannst aldrei ætla að taka enda) flúði ég til landsins góða! Þar tók á móti mér blíðskapar veður og yndislega fólkið mitt...þá meina ég ykkur öll! Þar var ég í dekri allan júlí mánuð og kom til danzka landsins út kvíld og bólstruð!
Ég smellti fingri (bara á annari hendi) og ágúst var búinn! Mér leið svolítið svona eins og að vakna upp af góðum draumi og rembdist við að sofna aftur...en það tókst ekki! Skólinn staðreynd og ekkert við því að gera. Nú er það sem sagt taka tvö! Það eru ekki allir svo heppnir að fá að gera tvær BA ritgerðir í Félagsráðgjöf! Til hamingju Ingibjörg med heidurinn
Ég, mamma & afi á eyjunni Ven

Annars kann ég alltaf vel við haustin, elska litina, elska kertaljós, elska að geta verið í fötum án þess að svitna á efrivörinni og samt ekki vera að frjósa, elska rólegheitin (þó ég sé ekkert rosalega róleg yfir heiðursverðlaununum mínum), elska að það sé stutt til jóla og þar af leiðandi ennþá styttra í að mandarínurnar koma í búðirnar!

Sjáum nú hvað ég verð dugleg að blogga héðan í frá (líklega rosa dugleg meðan ég skrifa ritgerðina:))

Góðan fimmtudag

 Bibban

ps. það koma myndir frá sumrinu við tækifæri:)

mánudagur, 23. apríl 2012

Vorið er komið!

...blómin komin...
..maður fær bara lyst til að vera úti
og fylla lungun af fersku vorlofti..
í bakgarði okkar (Calsberg) er búið að gera klifurbraut
 úr öllu mögulegu, hér sést meðal ananrs
ruslatunnur og innkaupakörfur...
Það var líka möguleiki að fá sér sunnudagsbíltúr í
einum af mörgum tegundum af kappakstursbílum
við ákváðum að sitja hjá í þetta skiptið og horfðum bara á
það var allt spólandi vitlaust
...vorinu fylgir vorhreingerning &
 rumpuðum við hjúin því af í dag...
...allt glansar og við sjáum út...


Nú getum við kastað okkur yfir lærdóm og vinnu með hreinlætislykt í nebbanum:)

Þessi elska er orðin 25 ára!

...og ég hlakka svo til að knúsa hana í júlí!

fimmtudagur, 19. apríl 2012

allt og ekkert!

 ...Þessi elska kíkti í helgarheimsókn í mars & það var æðislegt...
 ...hann fékk að kíkja á lampa sem við fundum í stórskralde fyrir að verða ári...
 ...nú eigum við nýjan lampa...

 ...Um páskana heimsóttum við Josse og Martin í sommerhus...
 ...æðislegt sommerhus...
svo kom páskadagur:
...Oft eru þau sárin verst sem ekki blæða...
 ...þessi var að koma í hús og bíður eftir að 24 apríl renni upp...
...annars vinn ég hörðum höndum að ná næst síðasta skrefinu í áttina að titlinum!...
...Ég hlakka til þegar þetta verður búið...

fimmtudagur, 8. mars 2012

overspringshandlinger!

...þessa viku er ég búin að vera í fríi frá skólanum...
...svona lestrarfríi...

...þar sem þetta er á dagskránni...
...& þar sem kvefið er komið í heimsókn (óboðið) er erfitt að einbeita sér að lestrinum....
...eða mér hefur þótt það bara erfitt almennt síðasta mánuðinn hvort sem það eru óboðnir gestir í heimsókn eða ekki...
...langar miklu frekar að eyða dögunum í nýja verkefnið...
...& hafa það notalegt...

miðvikudagur, 7. mars 2012

Ó svo fallegt...

*Hlín Reykdal*

...& myndi passa vel í skaRt safnið mitt...
...varð ástfangin af nR. 3. frá vinstri, en það er einhver önnur en ég sem á það...bráðum!


fimmtudagur, 1. mars 2012

6. maRtZ


...í dag á ég afmælismann...
...sem felur í sér endalausa gleði...
...það er svo gott að geta glatt og sýnt þakklæti...
...fyrir eitt af því beZta sem ég á...


fimmtudagur, 23. febrúar 2012

undarlegt

...dagurinn minn byrjaði í jóga tíma...
...já! ég trúi því varla sjálf en mér fannst það gaman & gott...
...það sem mér fannst meira skrítið var þegar ég var búin í tíma, sturtu og tilbúin í daginn...
...á leið út úr ræktinni með bros á vör þegar gaurinn í mótökunni spurði mig: hey ert þú ekki Ingibjörg? Ohh jú það er ég...ég hélt hann ætlaði að fara að skamma mig fyrir að hafa mætt svona lítið síðasta mánuðinn...ég fékk smá hnút í magann og var tilbúin með allar þær afsakanir sem ég hafði á færibandi...þá segir hann að hann það sé ein Ingibjörg að vinna með honum...ég varð hissa spurði hann hvort hún væri íslendingur og hann játaði...ég vissi ekki hvað ég átti að segja meira en eigðu góðan dag og svo gekk ég út...Ég er enn að pæla í því hvernig hann vissi að ég heiti Ingibjörg?
...eiGiÐ gÓdaN dAg...

þriðjudagur, 21. febrúar 2012

2o12 flýgur af stað...

...janúar fór mest í lærdóm...
...janúar endaði þó á Íslandi...
...febrúar byrjaði á Íslandi...
...ég elskaði hverja mínútu...
...fékk fullt af knúsi og öðru sem fyllir hjartað gleði og gefur lífinu gildi...
...hlakka strax til þegar ég kem næst...
...ég lærði að hekla...
...og þar með er eitt af markmiðum 2o12 náð...
*Fyrsta verkið í bígerð*

...tAkK aLliR fyRiR mIg...

þriðjudagur, 29. nóvember 2011

París, aðventa & lærdómur!

...Við hjúin fórum til Parísar um daginn og jeminn hvað það er huggulegt...
...Við sáum allt sem maður á að sjá í París (eða svona næstum)...
...meðal annars Mick Jagger sem er ekki mikið stærri en ég og hrukkóttari en ég og Magnus til saman sinnum milljón...
..Ég fékk uppfylltan drauminn um að komast að leiði Jim Morrisson. Þann draum hef ég haft síðan ég var 15 ára...eins og vinkona mín sagði við mig: stundum er Ingibjörg soldið skrítin! ...París er vel hægt að mæla með!

...Paradísarmyndir hér til hliðar...


...Aðventan er komin alveg óvænt...
...ég hef engan vegin fattað að það sé að koma desember...
...hann á líka eftir að fljúga framhjá þar sem ég á eftir að lesa mig rangeygða allan mánuðinn og langt fram í janúar...
...þá er gott að hugsa til þess að eiga flugmiða til ÍSlandsins 21 janúar...
...ég get ekki beðið!

ást og sakn

þriðjudagur, 15. nóvember 2011

Mæli með!



Ég ákvað að koma gullmanninum mínum á óvart og pantaði miða á þessa frábæru tónleikamynd:

...Gullamaðurinn átti að hitta mig við aðalinganginn á Vesterport lestarstöðinni...
...á mánudagskvöldi ekki seinna en 21.10...
...honum datt í hug að við værum að fara til Louisiana listasafnið en fékk það ekki alveg til að passa á þessum tíma dags...
...hann óttaðist að við værum að fara til spákonu (why?)...
...og annars var hann alveg blanko...
...tveim tímum, einni kók og lakkrísstöng seinna gengum við út úr Imperial...
...með RiSa bros á vör...


...það er sVo gaman að gleðja...

mánudagur, 3. október 2011

Loksins

...á morgun kemur gnúsinn minn loksins heim....
...hann er búinn að vera í Kína í 17 daga...
...á meðan er ég búin að vera í lengsta og tilgangslausasta fríi frá skólanum...
...hef beisíklí látið mér leiðast...
...ég ætlaði að læra rosa mikið en svo var bara 20-25 stiga hiti og sól í heila viku...
...þá lærir maður ekki...
...það er á svona tímum sem ég sakna þess að vera á íslandi...
...annars er ég kát með lífið og tilveruna og hlakka til að veturinn komi og kuldinn, kertaljósin og huggulegheitin sem fylgir...
...annars er ekkert að frétta frá baunalandi...

kNúZaR

laugardagur, 17. september 2011

jÆjA jÁ

Það sem hefur gerst síðan síðast:
...jeg og ástmaðurinn fórum til Israels í janúar...
...Jeg var á Íslandi í sex vikur í sumar og það var alveg yndislegt...
...jeg náði að gera rosa margt...
...knúsa rosa marga...
...fara í tvær gæsanir...
...& tvö brúðkaup...
...þar á meðal hjá litlu systur minni...
...Innilega til hamingju elsku Harpa mín og Davíð...

...jeg passaði uppáhaldz Lovísuna mína og Benjamín minn...

...jeg sakna þeirra rosa...
...jeg fór líka til Æðeyjar...
...jeg fagnaði 85 ára afmæli með ömmu minni og 80 ára afmæli með afa mínum...
...jeg hljóp 10 kílómetra í fyrsta skipti á ævinni og líklega síðasta...
...jeg og gnúsinn fórum upp á esjuna...
...jeg sem hafði heitið mér því fyrir mörgum árum að gera það aldrei...
...aldrei að segja aldrei!...

...Jeg er ennþá í skóla!
...Jeg er meira að segja búin með eitt ár!
...Jeg á eitt og hálft ár eftir! ákvað að taka einni önn meira til þess að verða bezti félagsráðgjafinn!
...Jeg var alla síðustu önn í praktik hjá kommúnunni og var þar með 13-16 ára unglinga. Jeg lærði helling en hefði alveg getað lært meira!
...Jeg er núna komin í nýjan bekk! Þau eru fín!
...nú er gnúsinn minn í Kína að kenna kínverjum um menningu...
...ég er þar af leiðandi ein heima og var að byrja í tveggja vikna fríi í dag...
...það er ekkert á dagskránni nema bara njóta lífsins...
...Life is beautiful...

*fyrir alla bæði konur og kalla þá er kominn inn bunki af nýjum myndu frá öllu þessu ári*